Þetta er leiðinlegt af hálfu okkar kaupmanna og verslunarfólks að standa okkur svona illa í þessu. Ég verð að viðurkenna það, segir Ragnar Sverrisson kaupmaður í JMJ og formaður Kaupmannafélags Akureyrar í samtali við Vikudag. Eins og greint var frá á dögunum leiddi könnun Neytendasamtakanna í ljós að verðmerkingar í búðargluggum í miðbæ Akureyrar er ábótavant en einungis 25 prósent verslana þar eru með góðar eða ásættanlegar verðmerkingar.
Mér finnst mjög slæmt að við kaupmenn skulum ekki standa okkur betur en þetta, segir Ragnar. Brynhildur Pétursdóttir hjá Neytendasamtökunum lét hafa eftir sér að það væri frekar til góðs að hafa verðmerkingar í búðargluggum og líklegra til þess að fá fólk inn í verslanir. Ragnar segist sammála þessu.
Ég tek heilshugar undir þessa gagnrýni og ætla rétt að vona að þetta verði til þess að við kaupmenn á Akureyri vöknum til lífsins. Þetta er óvirðing við kúnnan," segir hann. Nánar er rætt við Ragnar um málið og almennt um verslun í sumar í nýjustu prentútgáfu Vikudags.