Tekinn á 153 kílómetra hraða

Ökumaður bifhjóls var stoppaður á Ólafsfjarðarvegi um kl. 10:30 í gærkvöld þar sem hann mældist á 153 kílómetra hraða en hámarkshraði er 90 km. Að sögn lögreglu á hann von á því að missa ökuréttindin í tvo mánuði og þarf að greiða 140 þúsund króna sekt. Þá var ökumaður stöðvaður á Akureyri um ellefu leytið í gærkvöld vegna gruns um vímuefnaakstur.

Nýjast