Við teljum okkur sjá smávægilegan bata á mörkuðum, það eru ýmis teikn á lofti um að á árinu verði hægur bati, en það er enn of snemmt að segja fyrir um hvernig hlutirnir þróast, segir Rúnar Sigurpálsson fjármálastjóri hjá verksmiðju Becromal á Akureyri.
Hann segir að fyrirtækið sé nú að koma undan þungu ári, síðastliðið ár hafi verið mjög erfitt og dróst starfsemin saman.
Verksmiðjan var ekki keyrð á fullum afköstum, en við höfum nú eftir áramót örlítið verið að auka við, þannig að það er jákvætt, segir Rúnar.
Becromal brást við samdrætti á alþjóðamarkaði með því að draga verulega úr framleiðslu sinni á liðnu ári og var verksmiðjan keyrð að jafnaði á um 70% afköstum.
Starfsmenn eru 110 talsins líkt og verið hefur undanfarna mánuði og engin áform uppi að sögn Rúnars um að þeim fjölgi verulega á næstunni.
Við rennum blint í sjóinn með hver þróunin verður á þessu ári, en sá hægi bati sem við þó sjáum er jákvæður, segir hann.