Telja átti atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í dag, en sökum ófærðar var ekki hægt að koma kjörgögnum frá Austurlandi til Akureyrar í nótt. Guðmundur Skarphéðinsson starfsmaður kjörnefndar segir að þess vegna verði ekki talið í dag, það verði gert við fyrista tækifæri.
Um 4.000 voru á kjörskrá og segir Guðmundur að yfir 2000 hafi kosið.
Þingmennirnir Kristján Þór Júlíusson og Tryggvi Þór Herbertsson sækjast báðir eftir fyrsta sæti.