Talningu atkvæða í prófkjöri frestað

Yfir 2000 kusu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í NA kjördæmi
Yfir 2000 kusu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í NA kjördæmi

Telja átti atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í dag, en sökum ófærðar  var ekki hægt að koma kjörgögnum frá Austurlandi til Akureyrar í nótt. Guðmundur Skarphéðinsson starfsmaður kjörnefndar segir að þess vegna verði ekki talið í dag,  það verði gert við fyrista tækifæri.

Um 4.000 voru á kjörskrá og segir Guðmundur að yfir 2000 hafi kosið.

Þingmennirnir Kristján Þór Júlíusson og Tryggvi Þór Herbertsson sækjast báðir eftir fyrsta sæti.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast