Akureyringar lentu í kröppum dansi gegn liði Víkings í 32-liða úrslitum bikarkeppni HSÍ. Liðin mættust í Víkinni sl. mánudag og vann Akureyri, 35-34, eftir tvíframlengdan leik. Fyrirfram var búist við nokkuð þægilegum sigri Akureyrarliðsins sem leikur í úrvalsdeild, en fyrstu deildarlið Víkings sýndi þeim enga virðingu og voru hársbreidd frá því að slá norðanmenn út úr keppni. Bjarni Fritzson fór sem oft áður fyrir liði Akureyringa og skoraði ellefu mörk og Guðmundur Hólmar Helgason skoraði átta mörk. Hjá Víkingum var Arnar Freyr Theodórsson markahæstur með sjö mörk.
Það vakti athygli að varnarjaxlinn Guðlaugur Arnarsson var kominn aftur í lið Akureyrar en hann lagði skóna á hilluna í vor. Mikil meiðsli herja á lið Akureyrar og þar sem Hreinn Þór Hauksson gat ekki spilað gegn Víkingi var leitað til Guðlaugs sem svaraði kallinu