Vaxtarsamningur Eyjafjarðar auglýsir eftir umsóknum um styrki, sem veittir verða til verkefna sem líkleg eru til að efla nýsköpun og samkeppnishæfni atvinnulífs á Eyjafjarðarsvæðinu.
Styrkhæf verkefni eru rannsóknarþróunar- og nýsköpunarverkefni sem markvisst stefna að markaðssetningu nýrrar eða endurbættrar vöru eða þjónustu. Umsóknarfrestur rennur út 22. janúar.
Vaxtarsamningur Eyjafjarðar er samningur milli Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar. Núgildandi samningur var undirritaður í lok febrúar 2012 og gildir fyrir árin 2012 og 2013.
Meginmarkmið samningsins er að efla nýsköpun og samkeppnishæfni atvinnulífsins á starfssvæði Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar og auka hagvöxt með virku samstarfi fyrirtækja, háskóla, sveitarfélaga og ríkisins. Áhersla skal vera á styrkveitingar til stærri og veigameiri samvinnuverkefna sem hafa það markmið að efla nýsköpun og þróun í atvinnulífi svæðisins. Verkefnastjóri er Baldvin Valdemarsson, sem veitir nánari upplýsingar um styrkveitingar.