Sveitarfélög í brunaslönguboltaslag!!

  Um helgina verður Eyjaförður undirlagður í hátíðum en Handverkshátíð við Hrafnagilsskóla hefst á morgun og stendur fram á mánudag.  Meðal viðburða í tengslum við hátíðina verður brunaslöngubolti þar sem sveitarstjórnir á Eyjafjarðarsvæðinu munu takast á.  Leikirnir fara fram á fótboltavellinum við hátíðarsvæðið n. k. sunnudag og hefjast kl. 14:30.  Búist er við fjörugum kappleik.  Sveitarstjórnir sem taka þátt eru Grýtubakkahreppur, Svalbarðasstrandahreppur, Hörgárbyggð, Akureyri og Eyjafjarðarsveit.

Brunaslöngubolti fer þannig fram að spilað er á fótboltavelli með tvö mörk.  Markmaður hvors liðs fær brunaslöngu sem nýta skal til varnar.  Liðin eiga svo að keppast við að skora mark hjá andstæðingnum og þá sérstaklega að komast framhjá brunaslöngumarkmanninum.

Nýjast