01. janúar, 2013 - 16:23
Fréttir
Sveinn Jónsson
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sæmdi tíu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag.Sveinn Jónsson bóndi í Kálksskinni var ræmdur riddarakrossi fyrir störf í þágu atvinnulífs og félagsmála í heimabyggð.
1. Eggert Pétursson myndlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar myndlistar
2. Eva Sigurbjörnsdóttir hótelstjóri, Djúpuvík, riddarakross fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu í dreifðum byggðum
3. Helga Birna Gunnarsdóttir þroskaþjálfi, Hafnarfirði, riddarakross fyrir störf í þágu fatlaðs fólks, menntunar og félagsmála þroskaþjálfa
4. Inga Dóra Sigfúsdóttir prófessor, Reykjavík, riddarakross fyrir frumkvæði og rannsóknir á sviði forvarna
5. Ingibjörg Einarsdóttir skrifstofustjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til eflingar lestrarhæfni grunnskólanema
6. Kristín Guðmundsdóttir íþróttakennari, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til þjálfunar fatlaðra íþróttamanna
7. Kristján Eyjólfsson læknir, Reykjavík, riddarakross fyrir frumkvæði á sviði hjartalækninga og framlag til heilbrigðisvísinda
8. Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu íslenskrar leiklistar
9. Sveinn Elías Jónsson bóndi og byggingameistari, Kálfsskinni, riddarakross fyrir störf í þágu atvinnulífs og félagsmála í heimabyggð
10. Þórir Baldursson tónlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tónlistar