Svarti dauði fluttur frá Akureyri til Noregs

Hinn akureyríski Black Death bjór verður seldur í yfir 100 verslunum Vinmonopolet í Noregi þar sem hann er talinn munu höfða til þungarokkara. Norskir bjórunnendur geta keypt bjórinn frá og með 7. júlí næstkomandi þegar fyrstu flöskurnar af þessum íslenska mjöð berast í verslanir, en Black Death er bruggaður í ölgerð Vífilfells á Akureyri.

Upphaf þess að norska ríkiseinkasalan (Vinmonopolet) ákvað að taka Black Death til sölu í verslunum sínum var svokallað blindsmakk, þar sem innkaupastjórar og bragðgæðingar bragða „blint“ á nýjum bjórtegundum. Bjórinn hlaut einróma lof fyrir gott bragð, en vörumerkið og umbúðirnar vöktu líka athygli. Forsvarsmenn innflutningsaðilans í Noregi telja að umbúðirnar eigi eftir að höfða til Norðmanna - ekki síst áhugafólks um þungarokk. Sá hópur er nokkuð stór í Noregi og er jafnframt stór markhópur þegar kemur að bjórsölu.

Það var þann 1. mars síðastliðinn að norska áfengisverslunin tilkynnti að íslenski bjórinn hafi orðið fyrir valinu. Aðstandendum Black Death þótti vel við hæfi að tilkynningin um val Norðmannana skuli hafa borist á bjórdaginn sjálfan. Hann var því í raun samþykktur í sölu í Noregi áður en hann fékk brautargengi á sínum eigin heimamarkaði - Íslandi. Black Death verður auk þess fáanlegur í margfalt fleiri verslunum þar ytra, en hann er aðeins að finna í þremur vínbúðum ÁTVR, eins og er.

Valgeir Sigurðsson, eigandi Black Death vörumerkisins, er afar ánægður með þennan áfanga: „Sú staðreynd að bjórinn er valinn inn í blindsmakki staðfestir gæði hans að okkar mati. Vörumerkið er einstakt, það er byggt á gömlum grunni og höfðar til breiðs hóps. Það stóð ekki í Norðmönnunum að leyfa fólki að drekka í friði,“ segir Valgeir og vitnar þar til áletrunarinnar „Drink in Peace“ sem er að finna á merkimiða flasknanna og leiddi til þess að bjórinn fékkst í fyrstu ekki samþykktur til sölu í ÁTVR, þó að þeirri ákvörðun hafi síðar verið snúið við.

Fyrsta sendingin af bjórnum, sem seldur verður í 33cl flöskum til byrja með, er nú á leið til Noregs. Góðar viðtökur hans í Noregi munu líklega hjálpa til við að koma honum í sölu víðar á Norðurlöndunum í framhaldinu. Nokkuð sem myndi kalla á aukin umsvif í ölgerð Vífilfells á Akureyri.

Nýjast