Svanavatnið í Hofi

Hátíðarballettinn frá Pétursborg flytur Svanavatnið ásamt Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í Hamraborg í Menningarhúsinu Hofi sunnudaginn 24. nóvember. Nánast uppselt er á viðburðinn er fram kemur í tilkynningu frá Menningarfélagi Akureyrar. 

Verkið er samið við tónlist hins vinsæla tónskálds, Piotr Tchaikovsky og hefur um aldir haft geysilegt aðdráttarafl. Svanavatnið sameinar töfrandi tónlist Tchaikovsky, áhrifamikla ástarsögu og líkamstjáningu sem kallar fram það stórbrotna sem dansararnir hafa fram að færa. Pétursborg er upprunastaður hins rómaða rússneska balletts sem er innblásinn af Marius Petipa á 20. öldinni.

Hátíðarballettinn frá Pétursborg var stofnaður árið 2009 til að endurspegla bestu hefðir og anda Pétursborgarballettsins í sýningaferðum um Evrópu og allan heim. Glæsileiki, þokki og yndislegur léttleiki er það sem einkennir Hátíðarballett Pétursborgar með ferskan innblástur frá tuttugustu og fyrstu öldinni, fullkomna danssýningu prýdda konunglegum búningum og sviðsmynd. Sviðsmynd og búningar eru eftir hinn heimsþekkta Vyacheslav Okunev sem starfað hefur í þekktustu húsum heims sem og Bolshoi Theatre, Mariinsky Theatre og La Scala.

Á síðustu fimm árum hefur Hátíðarballett Pétursborgar dansað við frábærar undirtektir á stærstu sviðum Evrópu, þar á meðal Þýskalandi, Austurríki, Ítalíu, Finnlandi, Svíþjóð, Póllandi, Íslandi, Tékklandi, Ungverjalandi, Króatíu, Slóvakíu.

Í tilkynningu segir að Menningarbrú Hofs og Hörpu gerir komu rússneska ballettsins að möguleika. Svanavatnið verður flutt í Hörpu í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands.


Athugasemdir

Nýjast