Reykjavíkurflugvöllur. Mynd úr safni
Á fundi sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps var samþykkt bókun varðandi Reykjavíkurflugvöll.
Þar kemur fram að sveitarstjórn leggi áherslu nauðsyn þess að ávallt sé fært með sjúklinga að eina hátæknisjúkrahúsi landsins. „Það er því ófrávíkjanleg krafa að neyðarbraut Reykjavíkurflugvallar verði opnuð aftur þar til önnur og jafngóð lausn finnst,“ segir í bókuninni.
Bókunin í heild:
Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps leggur áherslu á nauðsyn þess að ávallt sé greið leið með sjúklinga að eina hátæknisjúkrahúsi landsins, sjúkrahúsi allra landsmanna, sem staðsett er í miðborg Reykjavíkur. Lokun neyðarbrautarinnar svo kölluðu á Reykjavíkurflugvelli hefur á undangengnum vikum leitt til þess að sjúkraflugvélar hafa ekki getað lent í Reykjavík né annars staðar á suðvestur horninu með alvarlega veika einstaklinga, sem hafa þurft á bráðnauðsynlegri umönnun að halda. Það er því ófrávíkjanleg krafa að neyðarbraut Reykjavíkurflugvallar verði opnuð aftur þar til önnur og jafngóð lausn finnst. Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps skorar á Borgarstjórn Reykjavíkur, Samgönguráðherra og Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis að stuðla að því að svo geti orðið.