Sumarstarf við Hólavatn hefst á morgun, fimmtudaginn 7. júní en þann dag mætir fyrsti hópur sumarsins. Það er Frumkvöðlaflokkur fyrir 7-8 ára börn sem fær heiðurinn af því að vera fyrsti hópurinn til að dvelja í nýju húsi sem nú verður tekið í notkun. Tæplega tvö hundruð börn eru skráð í sumar í átta dvalarflokka í júní og júlí en það er svolítil aukning frá fyrra ári. Fullbókað er í tvo flokka sumarsins en ennþá er hægt að bæta við krökkum í aðra hópa. Aðstaðan í sumar er hreint út sagt frábær með nýjum herbergjum og snyrtingum og þá hefur eldri svefnsölum verið breytt í tómstundarými með borðtennisborði, fótboltaspili og fleira. Aðstaðan úti hefur einnig verið bætt og í sumar verður hægt að spila blak á nýjum blakvelli eða prófa að ganga á vatni innan í stórri plastkúlu. Það er ljóst að frábært sumar er í vændum fyrir börnin á Hólavatni.
Nánari upplýsingar fá finna á heimasíðu félagsins www.kfum.is<http://www.kfum.is>.