Sumarsmellur frá Hvanndalsbræðrum

Hvanndalsbræður senda frá sér nýjan gamlan sumarsmell á næstu dögum en þeir bræður hafa endurútgefið ABBA slagarann "Super Trooper." Hjá bræðrunum heitir lagið "Izuzu Trooper" og er óður til jeppanna sígildu. Myndband við lagið var einnig tekið upp og kemur út von bráðar. Þetta verður þriðja myndband sveitarinnar en eitt hefur ekki sést áður og verður sýnt á afmælistónleikum í október nk.

Það verður annars mikið að gera hjá Hvanndalsbræðrum um verslunarmannahelgina. Þeir verða á Græna Hattinum á fimmtudeginum 2. ágúst, á útisviði á Siglufirði föstudag og sunnudag og verða á Akureyri á laugardaginn, þar sem þeir spila bæði á útisviði og halda dansleik á 600 Akureyri. 

Nýjast