Sumarkjóla- og freyðivínshlaup Akureyrar fer fram á morgun fimmtudag

Sumarkjóla- og freyðivínshlaup Akureyrar fer fram á morgun fimmtudag
Sumarkjóla- og freyðivínshlaup Akureyrar fer fram á morgun fimmtudag

Eitt sérstakasta víðavangshlaup landsins er án efa Sumarkjóla og freyðivínshlaup Akureyrar sem fram fer á morgun fimmtudag og verða hlaupagikkir ræstir af stað kl 17:00 Það eykur enn á sérstöðu þessa viðburðar að það er aldurstakmark í hann þvi þátttakendur þurfa að hafa ná 20 árum til þess að vera með.

Í hressilegri tilkynningu frá aðstandendum  hlaupsins  sem finna má á samfélagsmiðlum má lesa:

HæææHóóóó!!
Sumarkjóla- og Freyðivínshlaupið er heldur betur á dagskrá og ætlum við að keyra verslunarmannahelgina í gang!
Sumarkjóla og Freyðivínshlaup verður haldið í Kjarnaskógi þann 30.Júlí kl 17.00 🍾✨️
 
-> 20. ára aldurstakmark er í hlaupið! <-

Nú er heldur betur rétti tíminn til þess að draga fram sumarkjólinn 👗 og/eða sumarfötin 🩳👕 sem þú hefur ekki náð að nota í sumar! 🌻
Við hittumst öll á planinu við Kjarnakot, eina sem þú þarft að taka með er ísköld 750ml flaska af freyðivíni (áfengt/óáfengt), grípa glas með og alls ekki gleyma góða skapinu! 🥂✨️
Hvetjum öll til þess að mæta, allir fara á sínum hraða! Labb, hlabb eða hlaup allt leyfilegt 🏃‍♀️🚶‍♀️💥
 
Hlaupaleiðin er sú sama og í fyrra, 1 hringur ca 2.2km - Svo þetta á BARA að vera gaman!!
 
Auðvitað leyfilegt að fara lengra!"

Nýjast