Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins mun leiða framboðslista flokksins í Norðausturkjördæmi, kosið var á milli hans og Höskuldar Þórs Þórhallssonar á tvöföldu kjördæmisþingi í Mývatnssveit um helgina.
Sigmundur Davíð hefur sagt að hann muni flytja lögheimili sitt í kjördæmið, ýmsir staðir komi til greina.
Nú styttist óðum í að við flytjum lögheimili okkar, það eru svo margir góðir og fallegir staðir í kjördæminu og nú getur maður farið í að velja á milli staðanna.
Hann segir að hringurinn sé farinn að þrengjast.
Jú, jú, en ég ætla þessu máli nokkra daga í viðbót.
Er Akureyri líklegur staður?
Ég get ekkert sagt um það á þessari stundu.
karleskil@vikudagur.is