Styttist í að Nettó opni á nýjum stað á Glerartorgi

Nettó opnar á nýjum stað á Glerártorgi
Nettó opnar á nýjum stað á Glerártorgi

Nettó opnar  í næsta mánuði á nýjum stað á Glerártorgi eða þar sem áður var verslun Rúmfatalagersins  ,,Áætlað er að opna nýja Nettó Glerártorg þann 23.febrúar næstkomandi – heildarrýmið eru um 2200 fm og það verður nýr blær yfir henni þó áfram með þá sterku stefnu sem Nettó er með, þar sem þú færð meira fyrir peninginn og vöruúrvalið er framúrskarandi. Við erum spennt að opna þessa glæsilegu verslun með sér inngangi ásamt því að tengjast inn á  Glerártorg“ segir Gunnur Líf Gunnarsdóttir framkvst. Mannauðs  og samskiptasviðs hjá Samkaupum sem rekur Nettó verslanirnar. ,,Helstu nýjungar verða í skyndilausnum, sem verður gaman að sýna Akureyringum þegar við opnum.  Í samfloti við opnun versluninnar þá mun opna Sælkerafiskibúðin Fiskkompaní – sem verður frábær viðbót við Torgið og skemmtilegt samstarf fyrir okkur í Nettó“  

Gunnur sagði einn fremur að Samkaup hafi óskað eftir því að fá að stækka húsið sem hýsir verslun  Nettó við Hrísalund og er sá bolti enn hjá Reitum sem eru eigendur  húsins.

 

 


Athugasemdir

Nýjast