Styrkir úr Vaxtarsamningi Eyjafjarðar

F.v. Víðir Björnsson, Elín Aradóttir,AFE, Þórarinn Kristjánsson,Arnheiður Jóhannsdóttir, Hannes Garð…
F.v. Víðir Björnsson, Elín Aradóttir,AFE, Þórarinn Kristjánsson,Arnheiður Jóhannsdóttir, Hannes Garðarsson

 Á aðalfundi AFE í gær var úthlutað fjórum styrkjum úr Vaxtarsamningi Eyjafjarðar (VaxEy). Styrkirnir námu samtals 14,1 m.kr. Hæsta styrkinn eða 7 milljónir króna fékk Air 66N  í þróun og markaðssetning. Forsvarsaðili verkefnisins er Markaðsstofa Norðurlands, en verkefnisstjóri er Arnheiður Jóhannsdóttir.

Næst hæsta styrkinn, eða 5 milljónir, fékk  GPO ehf.,  til verkefnisins “Plast í olíu”  Verkefnisstjóri er Þórarinn Kristjánsson

Þriðja hæsta styrkinn eða 1,5 milljónir fékk Rafeyri ehf til verkefnisins “Loftskiptar frauðumbúðir”  Verkefnisstjóri er Hannes Garðarsson.

Loks fékk  Skelfélagið ehf  600 þúsund króna styrk til tlraunaveiða á sandskel og báruskel fyrir Norðurlandi með vatnsþrýstiplógi. Verkefnisstjóri  er Víðir Björnsson.

VaxEy er samningur AFE við iðnaðarráðuneytið sem hefur það meginmarkmið að efla nýsköpun og samkeppnishæfni atvinnulífsins á starfssvæði AFE og auka hagvöxt með virku samstarfi fyrirtækja, háskóla, sveitarfélaga og ríkisins. Núgildandi samningur gildir til ársloka 2013 og hefur um umtalsverðu fjármagni að ráða, eða um 90 m.kr. á samningstímabilinu.

Fyrri vaxtarsamningur rann sitt skeið í lok árs 2010 og koma nokkrar áherslubreytingar fram í nýja samningnum. Samkvæmt nýja samningnum skal leggja áherslu á að styrkja stærri og veigameiri samvinnuverkefni. Ennfremur er lögð ríkari áhersla á aðskilnað framkvæmdar og fjárhags Vaxtarsamningsins annars vegar og AFE hins vegar. Þannig er nú sérstök stjórn, sem skipuð er af iðnaðarráðherra sem tekur ákvarðanir um úthlutanir. AFE ber ábyrgð á framkvæmd og umsýslu með samningnum en ákveðið hefur verið að VaxEy skuli ávalt vera opinn fyrir umsóknum, en stjórn taki fyrir umsóknir að jafnaði á 2ja mánaða fresti.

Nýjast