Strax farið að undirbúa þorrablót

 

Undirbúningur fyrir þorrablótið í Hörgársveit stendur  nú sem hæst. Útsendarar þorrablótsnefndar hafa sést út um alla sveit með   kvikmyndatökuvélar og mun þeirri vinnu ekki lokið.
  Veislustjóri hefur verið ráðinn sunnan úr Borgarfirði og er það enginn annar   en sjónvarpshetjan Gísli Einarsson.

Hljómsveitin er heldur ekki af verri endanum, það   eru hinir margrómuðu Veðurguðir með Ingó í broddi fylkingar.

Þorrablótið verður haldið í Íþróttahúsinu á Þelamörk   og verður þetta í fyrsta sinn sem það er gert. Þessa dagana er unnið að   breytingum á Íþróttahúsinu sem gera samkomuhald af þessu tagi mögulegt.

Þorrablótið verður haldið laugardaginn 9. febrúar.   Menn og konur eru hvött til að taka kvöldið frá en miðasala hefst um   mánaðamótin.

Nýjast