Ég bind talsverðar vonir við að fólk noti þessa þjónustu, mér sýnst að leiðakerfið ætti að henta mörgum. Auk þess er fargjaldið tiltölulega hagstætt, þannig að ég hvet alla til að kynna sér þennan valkost, segir Pétur Þór Jónasson framkvæmdastjóri Eyþings. Fyrsti strætóinn kom til Akureyrar á fjórða tímanum í dag.
Reyndar var ekið á milli staðanna í gær, en ferðin í dag telst engu að síður vera fyrsta ferðin. Þegar vagninn lagði af stað frá Reykjavík í morgun voru farþegarnir fjórtán. Boðið er upp á þrjáðlaust net í vögnunum og þá hefur Strætó tekið í notkun svokallað rauntímakort þar sem nýjasta tækni gerir viðskiptavinum kleift að sjá staðsetningu vagnanna hverju sinni. Geir Kristinn Aðalsteinsson forseti bæjarstjórnar Akureyrar færði bílstjóranum blómvönd við komuna til Akureyrar og Pétur Þór færði honum konfektkassa. Farnar verða tvær ferðir á dag, nema laugardaga þá er ein ferð á milli Reykjavíkur og Akureyrar.