Strætó út af vegi

Vegurinn við Blönduós, myndin er tekin af vef Vegagaerðarinnar
Vegurinn við Blönduós, myndin er tekin af vef Vegagaerðarinnar
Björgunarsveitin Blanda á Blönduós kölluð út klukkan rétt rúmlega tvö í dag vegna rútuslyss í Langadal. Svo virðist sem rúta hafi farið út af veginum og lent a.m.k. að hluta ofan í ánni. Vatn er farið að flæða inn í rútuna en þeir átta farþegar sem voru um borð eru komnir í  land. Auk björgunarsveitarinnar er búið að kalla til lögreglu og þrjá sjúkrabíla. Að minnsta kosti einn farþegi er slasaður en ekki er vitað um fleiri á þessari stundu. Aðstæður á staðnum eru erfiðar, krapi og mjög hvass vindur.
 

karleskil@vikudagur.is

Nýjast