Stórleikur í Skautahöllinni á laugardaginn

Það verður hart barist í leik SA og SR í Skauptahöllinni á morgun laugardag
Það verður hart barist í leik SA og SR í Skauptahöllinni á morgun laugardag

Það er stórleikur framundan í Toppdeild kvenna í íshokkí þegar SA tekur á móti SR í Skautahöllinni á Akureyri laugardaginn 21. nóvember kl. 16.45.

SA hefur sýnt styrk sinn á tímabilinu og situr nú á toppi deildarinnar með 13 stig eftir fimm leiki. SR er með fjögur stig eftir jafn marga leiki, en Fjölnir hefur einnig fjögur stig eftir fjóra leiki.

Liðin hafa mæst þrisvar sinnum í deildinni í vetur. SA vann fyrstu viðureignina, 2-0, á Akureyri í september með mörkum Silvíu Ránar Björgvinsdóttur og Hilmu Bóel Bergsdóttur. Í október hafði SR betur í vítakeppni á heimavelli eftir markalausan leik og framlengingu. SA svaraði síðan með sannfærandi 4-0 sigri þegar liðin mættust í Reykjavík í lok október. Þar sáu Silvía Rán, Hilma Bóel, Eyrún Garðarsdóttir og Sólrún Assa Arnardóttir um markaskorunina.

Sérstaka athygli vekur varnarleikur SA en SR hefur ekki tekist að skora mark gegn Akureyringum í venjulegum leiktíma eða framlengingu í þremur innbyrðis viðureignum liðanna í vetur. Engu að síður má búast við hörkuleik þegar þessir erkifjendur mætast á ný í Skautahöllinni á laugardaginn.

Nýjast