Stórhættuleg gatnamót

Ástandið við gatnamót Arnarsíðu og Bugðusíðu þykir óviðunandi. Mynd/Þröstur Ernir.
Ástandið við gatnamót Arnarsíðu og Bugðusíðu þykir óviðunandi. Mynd/Þröstur Ernir.

„Ég veit til þess að það hafa orðið árekstrar þarna og þegar ástandið er eins og það er um þessar mundir skapast stórhætta,“ segir Benedikt Ármannsson íbúi við Arnarsíðu á Akureyri. Ökumenn sem aka upp Arnarsíðuna sjá seint bílana sem keyra í austurátt meðfram Bugðusíðu og hafa íbúar í nágrenninu líst yfir áhyggjum af gatnamótunum. 

„Ég á t.d. barn í leikskólanum þarna rétt hjá og það er bara brjálæði að ætla sér að taka vinstri beygju á morgnana þegar öngþveitið er hvað mest. Maður fer krókaleiðir frekar. Þegar það er dimmt að þá sérðu kannski ljósin á næsta bíl en annars rennur maður alveg blint út á götuna,“ segir Benedikt.

Samkvæmt upplýsingum frá Akureyrarbæ hefur skipulagsnefnd falið framkvæmdadeild að vinna að úrbótum en ástandið þykir með öllu óviðunandi.

throstur@vikudagur.is

 

Nýjast