Stórbætt aðstaða til meðhöndlunar úrgangs og endurvinnsluefna

Gámaþjónusta Norðurlands ehf. sem nú fagnar 25 ára afmæli og Sagaplast ehf. hafa opnað nýja og glæsilega móttöku- og flokkunarstöð, Hlíðarvelli, við Hlíðarfjallsveg á Akureyri.  Bæði félögin hafa áratuga reynslu af móttöku og vinnslu úrgangs- og endurvinnsluefna.  Sagaplast ehf. hefur á undanförnum árum átt í nánu samstarfi við Gámaþjónustu Norðurlands ehf. og hafa félögin sameinað krafta sína frá ársbyrjun 2012.  Sameining félaganna eykur hagkvæmni sem kemur viðskiptavinum beggja fyrirtækjanna til góða. Gámaþjónusta Norðurlands ehf. hefur verið virkur þátttakandi í að minnka urðun óflokkaðs úrgangs og auka endurvinnslu á starfssvæði sínu á Norðurlandi í samvinnu við sveitarfélögin. Meginmarkmiðin eru að hámarka endurnotkun, endurnýtingu og endurvinnslu, en lágmarka sóun og urðun úrgangs. Mjög góður árangur hefur þegar náðst en nýja aðstaðan að Hlíðarvöllum gefur möguleika á ennþá betri árangri í flokkun og endurvinnslu. Sérfræðiþekking fyrirtækisins tryggir góða ráðgjöf varðandi úrgangsstjórnun og með góðri samvinnu við viðskiptavini uppfyllir fyrirtækið þarfir þeirra í samræmi við aðstæður á hverjum stað.

Íbúar á Akureyri hafa tekið nýju sorphirðukerfi mjög vel og mikið af endurvinnanlegu efni kemur í grenndargámana sem þar eru staðsettir.  Íbúar í öðrum sveitarfélögum í Eyjafirði hafa einnig tekið mjög vel við sér varðandi breytt sorphirðukerfi og aukna flokkun.  Söfnun á lífrænum eldhúsúrgangi gengur alls staðar vel. Á svæðinu öllu hefur mikill metnaður og áhugi sveitarstjórnarmanna og íbúa farið saman til að gera sem best í málaflokknum. Með samstilltu átaki og samvinnu hefur mjög góður árangur náðst.  Rekstrarstjóri Gámaþjónustu Norðurlands ehf. er Helgi Pálsson.

 

Nýjast