Stjórnsýslueiningum fækkað og nefndir sameinaðar

Akureyri. Mynd úr safni.
Akureyri. Mynd úr safni.

Bæjarráð Akureyrar hefur samþykkt tillögur Capacent að breytingum á stjórnkerfi Akureyrarbæjar og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn. Í bókun bæjarstjórnar segir að með breytingunum verði stjórnsýsla Akureyrarbæjar aðlöguð að breyttum tímum.

„Frá því núverandi stjórnskipulagi var komið á hafa orðið miklar breytingar á verkefnum og rekstri bæjarins sem mikilvægt er að bregðast við. Það er markmið bæjarráðs að umbæturnar leiði til aukinnar skilvirkni, bættrar þjónustu og betri rekstrar sem er til hagsbóta fyrir bæjarbúa,“ segir í bókuninni.

Tillögur Capacent byggja á greiningu og mati ráðgjafa, umræðum á fundum stjórnkerfisnefndar ásamt samtölum og vinnustofum með starfsfólki. Þá er kemur fram að markmiðið með  breytingunum sé að laga stjórnsýslu bæjarins að breyttum tímum og ná fram aukinni skilvirkni til hagsbóta fyrir bæjarbúa.

Stjórnsýslueiningum fækkað

Miklar breytingar hafa orðið á rekstri bæjarins frá því núverandi stjórnskipulagi var komið á og er því verið að reyna bregðast við því breytta landslagi. Með stjórnsýsluumbótum verður stjórnsýslueiningum í skipuriti Akureyrarbæjar fækkað úr 14 í 10. Með sameiningu deilda er stefnt að því að auka faglegan styrk, yfirsýn og stytta boðleiðir. Einnig verða gerðar breytingar á fastanefndum og þeim fækkað.

Breytingarnar munu hafa í för með sér að sex þjónustusvið verði starfrækt hjá Akureyrarbæ, það eru: Fjölskyldusvið, búsetusvið, fræðslusvið, umhverfis- og mannvirkjasvið, skipulagssvið og samfélagssvið og tvö stoðsvið: stjórnsýslusvið og fjármálasvið.

Þá verða fjármálaþjónusta og hagþjónusta sameinaðar í fjársýslusvið og starfsmannaþjónusta og skrifstofa Ráðhúss verða sameinaðar í stjórnsýslusvið. Framkvæmdadeild og Fasteignir Akureyrarbæjar verða sameinaðar í umhverfis- og mannvirkjasvið og samfélags- og mannréttindadeild og Akureyrarstofa sameinuð í samfélagssvið. Verkefni skólateymis á fjölskyldudeild munu tilheyra fræðslusviði og verkefni húsnæðisskrifstofu munu tilheyra fjölskyldusviði. Skoðað verður annað rekstrarfyrirkomulag á Öldrunarheimilum Akureyrarbæjar. 

Sameining nefnda 

Nefndafyrirkomulag verður eftirfarandi: Umhverfisnefnd, framkvæmdaráð og stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar verða sameinuð í umhverfis- og mannvirkjaráði, samfélags- og mannréttindaráð og íþróttaráð verða sameinuð í frístundaráði og verkefni atvinnumálanefndar verða færð til stjórnar Akureyrarstofu. Nýtt stjórnskipulag tekur gildi 1. janúar 2017.

Í tillögunum var gert er ráð fyrir að setja saman aðgerðarhóp sem starfi með bæjarstjóra að framkvæmd breytinganna.  Sá aðgerðarhópur hefur nú verið skipaður og í honum sitja Matthías Rögnvaldsson og Sóleyju Björk Stefánsdóttur

Bæjarstjórn staðfesti tillögur Capacent að breytingum á stjórnkerfi Akureyrarbæjar með 11 samhljóða atkvæðum og jafnframt skipan Matthíasar Rögnvaldssonar og Sóleyjar Bjarkar Stefánsdóttur


Nýjast