Stjórn Arion banka kom færandi hendi norður

Höskuldur Ólafsson afhendir Bjarna Jónassyni forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri gjöfina.
Höskuldur Ólafsson afhendir Bjarna Jónassyni forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri gjöfina.

„Við veltum nokkuð fyrir okkur hvað myndi gagnast svæðinu best, við ákváðum á endanum að færa Sjúkrahúsinu á Akureyri að gjöf öndunarbúnað fyrir nýbura,“ segir Höskuldur Ólafsson bankastjóri Arion banka. Stjórn bankans og framkvæmdastjórn funduðu á Akureyri í vikunni. Höskuldur segir að útbú Arion banka sé mjög sjálfstæð eining, enda sé það stefna bankans að daglegur rekstur sé í höndum heimafólks.

„Hérna er til dæmis starfandi sérstök lánanefnd sem afgreiðir nánast öll lán. Starfsfólkið hérna gjörþekkir atvinnulífið og þarfir einstakra viðskiptavina, valdið á ekki að koma frá höfuðstöðvunum í Reykjavík.“ Hann segir að gjöfin tengist 150 ára afmæli Akureyrarbæjar. Bjarni Jónasson forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri segir að þessi höfðinglega gjöf bankans komi að góðum notum. Útibússtjóri Arion banka á Akureyri er Sigurður K. Harðarson.

Nýjast