Miðvikudaginn 23.janúar klukkan 19:30-20:30 mun Skandinavíski leikhópurinn Sticks & Stones vera með kynningu á verki sem þau eru að vinna að í vinnustofu Leikfélags Akureyrar. Kynningin mun fara fram í heita pottinum í Sundlaug Akureyrar. Allir velkomnir, bara að borga í laugina!
Sticks & Stones samanstendur af leikstjóranum og leikaranum Tryggva Gunnarssyni (ÍSL), leikurunum Piet Gitz-Johansen (DAN) og Ingrid Rusten (NO), og leikmynda- og búningahönnuðinum Lisa Hjalmarson (SE). Punch verður frumsýndur í Rými Leikfélags Akureyrar í lok febrúar, en eftir snarpa sýningatörn er ferðinni heitið til Noregs og Danmerkur til frekari sýninga.
Punch er byggt á miðalda-sögninni um hjónakornin Punch og Judy. Þrátt fyrir að hafa verið upprunalega ætluð börnum er sagan blóði drifin og svo uppfull af ofbeldi að jafnvel blóðugustu hasarmyndir samtímans komast ekki í hálfkvist við illsku Punch.
Meðal þeirra spurninga sem Sticks & Stones munu varpa upp í heita pottinum eru: Af hverju var Punch svona vinsæll fyrir að beita fólk líkamlegu ofbeldi? Og af hverju eru Rambo, Rocky, McClane og Bond svona vinsælir... og svona líka heillandi?