Stefnumótun í atvinnumálum

Undanfarið hefur verið unnið að stefnumótun í atvinnumálum Akureyrarbæjar og síðasta föstudag var undirritaður samningur við ráðgjafafyrirtækið Netspor um að stýrka verkinu. Stefnumótunin er unnin á vegum stjórnar Akureyrarstofu og stýrir starfsfólk Akureyrarstofu því af hálfu bæjarins. Því til halds og trausts er sérstök fagstjórn sem í eiga sæti Fjóla Björk Jónsdóttir aðjunkt við viðskiptadeild HA, Ingibjörg Ringsted framkvæmdastjóri Lostætis Akureyri, Sigmundur Ófeigsson stjórnarmaður í stjórn Akureyrarstofu og Unnsteinn Jónsson áheyrnarfulltrúi í stjórn Akureyrarstofu.

Fagstjórn verkefnisins hefur það að leiðarljósi að leitað verði eftir samráði hagsmunaaðila úr atvinnulífi bæjarins og nágrennis til að ná fram sem víðtækastri sátt um stefnu og framhald atvinnumála á næstu árum. Undirbúningur að vinnslu verkefnisins hefur staðið yfir í nokkurn tíma og er stefnt að því að lokaafurð þess líti dagsins ljós í lok maí á þessu ári.

 

Nýjast