Hjartað í Vaðlaheiði við Eyjafjörð slær aftur um mánaðarmótin en það er fyrirtækið Rafeyri sem á heiðurinn af því ásamt góðum styrktaraðilum. Hjartað, sem er á stærð við fótboltavöll, sló fyrst í lok árs 2008 og hefur vakið mikla lukka meðal fólks í Eyjafirði síðan þá. Hjartað er að jafnaði sett upp á Akureyrarvöku og í jólamánuðinum og mun sennilega slá fram yfir páska frá desember.
Davíð Hafsteinsson hjá Rafeyri segir ennfremur að stefnt sé að því að hafa hjartað varanlegt. Við erum að bíða eftir betri búnaði til þess að það sé hægt að hafa þetta uppi allt árið. Það er búið að fá leyfi hjá öllum landeigendum í Eyjafirði en þetta er hins vegar dýrt og óljóst hvenær þetta gæti orðið varanlegt. Það gæti hins vegar gerst næsta haust, segir hann.