Stefnir í metfjölda atkvæða utan kjörfundar

Frá kjörstað nú síðdegis
Frá kjörstað nú síðdegis

Mikil umferð hefur verið hjá á kjörstað í utankjörfundaratkvæðagreiðslunni á Akureyri í dag. Þegar klukkan var rúmlega 14:30 höfðu 2.240 greitt atkvæði. Til samanburðar má nefnda að í kosningunum 1996 kusu alls 2500 manns utan kjörfundar, og var það þá met. Nú stefnir í að það met verði slegið. Stöðugur straumur fólk var inn í húsið og nokkur biðröð hafði myndast. Í hádeginu var umtalsverð bið, all upp í 40 mínútur, en þá virðist hafa myndast ákveðinn kúfur. Kosið er í Skipagötu 9, 2. hæð og er gengið inn að austanverðu. (Húsið þar sem Sparisjóðurinn var áður). Hægt er að greiða atkvæði þar til klukka 21:00 í kvöld.

Nýjast