Sjómannahátíðin á Akureyri nýtur sífellt meiri vinsælda og stefnir í að þátttaka nú í ár verði góð líkt og undanfarin sumur, en hún verður um næstu helgi, dagana 20. og 21. júlí. Sjómannahátíðin verður nú haldin í þriðja sinn og dregur hún að sér m.a. sjómenn sem komnir eru af léttasta skeiði og muna tímana tvenna. Sæmundur Pálsson fyrrverandi togarajaxl er frumkvöðull að hátíinni og segir hann að gestir komi víða að, m.a. ætlar gamall jaxl að leggja leið sína frá Englandi þar sem hann er búsettur gagngert til að skemmta sér með gömlum félögum. Hátíðin er farin að spyrjast vel út og m.a. út fyrir landsteinana og það er frábært, segir Sæmundur. Þetta siglir allt saman í að verða grand.
Kvöldverður og dansleikur verður á Oddvitanum við Strandgötu. Raggi Bjarna og Helena Eyjólfs skemmta gestum með söng sínum, en veislustjóri er Valgeir Guðmjónsson. Sjómannafélag Eyjafjarðar heiðrar sjómenn við þetta tækifæri. Að lokum eru það gömlu brýnin Gylfi Ægisson, Megas og Rúnar Þór sem leika fyrir dansi. Daginn eftir verður haldið í sjómannamessu á Siglufirði. Að henni lokinni verður afhent líkan af Elliða SI 1, einum af nýsköpunartogurum landsmanna sem fórst 10. febrúar 1962 og með honum tveir menn. Boðið verður upp á kaffihlaðborð og fylgst með síldarsöltun á Síldarminjasafninu. Komið verður við í Bruggverksmiðju Kalda í bakaleiðinni og þeir sem kjósa geta siglt með Húna frá Árskógssandi til Akureyrar.