Starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri síðustu 6 mánuði er nokkuð meiri en á sama tíma á síðasta ári. Sjúklingum hefur fjölgað um 12% miðað við sama tímabil á síðasta ári. Stöðug aukning hefur verið á komur á dag- og göngudeildir auk þess sem slysadeildarkomum hefur fjölgað um 7,5%. Skurðaðgerðir standa í stað en fæðingum hefur fjölgað mikið eða um tæp 35% og spurning hvort stefni í metár. Þetta kemur fram í pistli Hildigunnar Svavarsdóttur framkvæmdastjóra hjúkrunar og bráða-, fræðslu- og gæðasviðs.
Almennum rannsóknum hefur heldur fækkað en myndgreiningar hafa aukist, þá eru aðrar rannsóknir fleiri á flestum sviðum. Áberandi er hve lyfjablöndunum hefur fjölgað eða um tæp 46% og helst það í hendur við mikla aukningu á dag- og göngudeild lyflækninga. Þá hefur komum á dagdeild geðdeilda verulega fjölgað miðað við sama tíma í fyrra. Ljóst er að álag er mikið þrátt fyrir að á sumum deildum er skert starfsemi og er starfsfólki færðar bestu þakkir fyrir gott starf og jákvætt viðmót sem skiptir miklu máli, segir ennfremur í pistli Hildigunnar.