Stærstur hluti starfsemi HSN flytur í Sunnuhlíð um næstu áramót

Framkvæmdir standa yfir við Sunnuhlíð en gert er ráð fyrir að starfsemi HSN flytji þangað um næstu á…
Framkvæmdir standa yfir við Sunnuhlíð en gert er ráð fyrir að starfsemi HSN flytji þangað um næstu áramót. Heimahjúkrun verður áfram í núverandi húsnæði við Skarðshlíð og sálfélagsleg þjónusta og geðheilsuteymi flytja í Hvannavelli 14. Unnið er að því að finna húsnæði fyrir þann hluta yfirstjórnar sem er á Akureyri. Mynd MÞÞ

Stærstur hluti af starfsemi Heilbrigðisstofnunar Norðurlands flytur í Sunnuhlíð um næstu áramót, heimahjúkrun verður áfram í núverandi húsnæði við Skarðshlíð og sálfélagsleg þjónusta og geðheilsuteymi flytja í Hvannavelli 14.  Unnið er að því að finna húsnæði fyrir þann hluta yfirstjórnar sem er á Akureyri.

Lengi hefur verið vitað að húsnæði heilsugæslunnar í Hafnarstræti 99 henti ekki undir þá starfsemi sem þar fer fram. Um þverbak keyrði í vetur með loftgæði í húsakynnum þar þegar skiptust á hlákur og mikið frost segir í tilkynningu á vef HSN. Verkfræðistofan EFLA var fengin til að taka húsnæðið út og mæla mögulega myglu. Skemmst er frá því að segja að mygla fannst í nokkrum rýmum.

Brugðið var á það ráða að leigja húsnæði á Hvannavöllum 14 þar sem N4 voru til húsa undir sálfélagslega þjónustu og geðheilsuteymi. Þannig er hægt að flytja starfsmenn úr þeim rýmum sem eru verst í húsnæði sem var nýtt undir sálfélagslegur þjónustuna. Það húsnæði hýsti áður Læknastofur Akureyrar.

 

Kostnaður við endurbætur of mikill

Markmiðið var að kljúfa starfsemina upp í tvær einingar þegar heilsugæslustöðin í Sunnuhlíð yrði tilbúin í desember 2023. Greining á kostnaði við að gera við Hafnarstræti 99 leiddi hins vegar í ljós að kostnaður við endurbætur yrði mjög mikill. „Ekkert vit er í því að leggja í slíkan kostnað þegar ætlunin er að flytja úr húsnæðinu í lok ársins 2025 þegar heilsugæslustöð við Þórunnarstræti verður tilbúin. Eðlilegt er að þegar það húsnæði er lagfært liggi fyrir framtíðar notkun á húsnæðinu,“ segir í tilkynningu.

Tekin hefur því verið sú ákvörðun um að fresta því að kljúfa upp starfsemina og flytja stærsta hlutann af klínískri starfsemi í Sunnuhlíð um áramót. Þannig verður öll læknisþjónusta, hjúkrunarmóttaka, mæðravernd, ungbarnavernd og önnur þjónusta í Sunnuhlíð. Heimahjúkrun verður áfram í húsnæði Hvítasunnukirkjunnar, sálfélagsleg þjónusta og geðheilsuteymi á Hvannavöllum 14, 3. hæð. Stefnt er á að sá hluti yfirstjórnar sem er á Akureyri flytji einnig þó enn sé óljóst hvert.


Athugasemdir

Nýjast