Atvinnuhorfur fyrir sumarið eru mjög góðar og staðan hefur ekki verið betri síðan um mitt árið 2008, segir Soffía Gísladóttir forstöðumaður Vinnumálastofnunnar hjá Norðurlandi eystra. Skráð atvinnuleysi á svæðinu í síðasta mánuði var 4 % og er það 1,2 % minna en á sama tíma í fyrra. Alls voru 414 skráðir atvinnulausir í maí, 181 karl og 233 konur og er það fækkun um 187 frá því í maí í fyrra. Það jaðrar við það að við séum að komast niður í eðlilegt ástand. Það vantar svona eitt prósent upp á það að gera að við náum jafnvægi á milli atvinnulífs og launþega. Þetta er allt í rétta átt, segir Soffía.