SS Byggir vill byggja í Móahverfi

Markmiðið er að auglýsa lóðir í Móahverfi í janúar 2023.    Mynd akureyri.is
Markmiðið er að auglýsa lóðir í Móahverfi í janúar 2023. Mynd akureyri.is

Meirihluti skipulagsráðs Akureyrar hefur samþykkt að fela skipulagsfulltrúa að hefja vinnu við útfærslu útboðs- og úthlutunarskilmála fyrir Móahverfi með það að markmiði að hægt verði að auglýsa lóðir í fyrsta áfanga hverfisins í janúar næstkomandi.

Fyrirtækið SS-Byggir sendi fyrir skömmu inn erindi og óskaði eftir úthlutun lóðar í Móahverfi fyrir 100 til 200 íbúðir við fyrsta tækifæri. Rök fyrir beiðni fyrirtækisins eru þau að það taki frá 9 mánuðum og upp í ár að fullhanna vönduð fjölbýlishús og því sé æskilegt að lóðum verði úthlutað þó svo að svæðið sé ekki byggingarhæft enn sem komið er.


Athugasemdir

Nýjast