Sportfatnaður í jólapakkann

„Það er alltaf mikið að gera í desember, segir Sigurður Einarsson verslunarstjóri og einn eigenda Sportvers á Glerártorgi á Akureyri.

Sportfatnaður af ýmsu tagi er alltaf vinsæll í jólapakkann  og úrvalið er mikið í Sportver. „Það selst mest af kvennfatnaði hjá okkur, svo eru barnavörurnar vinsælar en við bjóðum upp á mikið úrval af þeim. Fótboltatreyjur og íþróttaskór eru svo alltaf klassísk í jólapakkana,“ segir Sigurður. Í versluninni má einnig finna úrval af snjóbrettafatnaði, sem að sögn Sigurðar er sífellt að verða vinsælla. „Snjóbuxur seljast mikið og einnig hjálmar. Fólk er sem betur fer að verða meðvitaðra um að nota öryggisbúnað.“

Sigurður er ánægður með jólaverslunina hingað til. „Þetta fór rólega af stað í ár en hefur tekið við sér síðustu

daga. Það verður eflaust mikið að gera um helgina. En þetta er alltaf skemmtilegur tími og góð stemmning sem skapast hérna á Glerátorgi.“

throstur@vikudagur.is

Nýjast