Spáð ofsaveðri á morgun

Veðurstofa Íslands gerir ráð fyrir norðanstormi eða -ofsaveðri á morgun, hvassast V-til og stórhríð á norðanverðu landinu. Einnig verður stórstreymt á sunnudag, samfara óvenjulágum loftþrýstingi. Fram kemur í tilkynningu frá Veðurstofunni  að ekkert ferðaveður verði á norðanverðu landinu. Veðurspáin gerir ráð fyrir norðan 20-25 m/s en hægari vind austanlands.

Veðurstofan beinir tilmælum sínum til skíðafólks, vélsleðamanna og annara, sem eru á ferð á snjóflóðastöðum, að halda sig frá snjóflóðabrekkum og vera ekki á ferð, þar sem snjóflóð geta fallið. Einnig er fólki bent á að stöðva ekki farartæki sín á vegarköflum, þar sem hætta gæti verið á snjóflóðum. Þá er fólki bent á að fylgjast náið með upplýsingum um veður og færð.

Nýjast