Solveig Lára kjörin vígslubiskup á Hólum

Solveig Lára Guðmundsdóttir, sóknarprestur á Möðruvöllum.og verðandi vigslubiskup
Solveig Lára Guðmundsdóttir, sóknarprestur á Möðruvöllum.og verðandi vigslubiskup

Í dag voru talin atkvæði í síðari umferð kosningar til embættis vígslubiskups á Hólum. Tvö voru í kjöri í síðari umferð, sr. Kristján Björnsson og sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir. Atkvæði féllu þannig að sr. Kristján Björnsson fékk 70 atkvæði og sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir fékk 96 atkvæði. Alls voru 181 á kjörskrá, 174 greiddu atkvæði eða 96 %. Þrjú atkvæði voru auð og fimm ógild

Nýjast