Sóley Björk Stefánsdóttir, fjölmiðlafræðingur frá Akureyri, gefur kost á sér á framboðslista Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðausturkjördæmi og sækist eftir öðru sæti. Sóley hefur í mörg ár verið virkur félagi í VG og sinnt trúnaðarstörfum fyrir flokkinn, bæði á landsvísu og í bæjarmálum á Akureyri.
Ég býð fram krafta mína í það mikla verk sem framundan er við að byggja upp gott samfélag hér á ný. Samfélag sem byggir á jöfnuði, jafnrétti, lýðræði og heiðarleika. Nú hefur efnahagur landsins og trúverðugleiki verið endurreistur en mikilvægasti hluti starfsins er eftir en það er að ná samstöðu um að byggja upp réttlátt samfélag þar sem við tökum skynsamlegar ákvarðanir um okkar hagsmuni til framtíðar.
Við þurfum að efla lýðræðið og aðgengi almennings að upplýsingum, passa betur upp á auðlindirnar okkar og nýta þær skynsamlega, efla fjölbreytt atvinnulíf, bæta samvinnu, samskipti og vinnubrögð og efla stöðu landsbyggðarinnar, segir Sóley m.a. í tilkynningu.
Forval fer fram með póstkosningu og er kjördagur 10. desember næstkomandi. Kosningarétt hafa skráðir félagar í VG.