Snorri Óskarsson grunnskólakennari á Akureyri, sem sagt var upp störfum í síðustu viku vegna ummæla um samkynhneigð, sem hann viðhafði á bloggsíðu sinni, segir að mál sitt veki upp ýmsar spurningar um starfsskilyrði og réttindi kennara, í samtali við mbl.is. Snorri hyggst leita ráða hjá Kennarasambandi Íslands og hugsanlega kæra framgang Akureyrarbæjar varðandi brottreksturinn. Kennarasambandið hefur fylgst með áminningarferlinu og ég hef tvisvar sinnum fengið svör frá lögfræðingi sambandsins við fyrirspurnum mínum, sagði Snorri við mbl.is. Akureyrarbær bauð Snorra starfslokasamning fyrir nokkru, sem hann hafnaði. Ef ég hefði þegið þann samning, þá hefði ég hafnað rétti mínum til að sækja málið fyrir dómstólum. Þau buðu mér bara eitt ár á launum og opnuðu með því hina leiðina sem ég ætla að fara núna. Að mati Snorra hefur málið vakið upp ýmsar spurningar um starfssvið og réttindi kennara.