26. október, 2012 - 11:19
Fréttir
Hlíðarfjall í morgun Mynd/Karl Eskil
Snjóframleiðsla hófst í Hlíðarfjalli í gær. Þar með hófst lokaundirbúningur að opnun á skíðasvæðinu. Veðurspáin er góð framundan ef frá er talin helgin. Stefnt er að opna skíðasvæðið 1.desember en ef aðstæður verða góðar til framleiðslu gæti farið svo að hægt verði að opna fyrr. Heildar vatnsdæling er 4800 lítrar pr. mínútu. Við snjóframleiðslu breytist 1 rúmmeter af vatni í 2 rúmmetra af snjó.