Snædrekinn til sýnis í dag

Snædrekinn.
Snædrekinn.

Málþing um málefni norðuslóða og norðurslóðasamstarf Íslands og Kína fer fram í Menningarhúsinu Hofi í dag. Þar munu vísindamenn frá Kína og Íslandi fjalla um norðurslóðarannsóknir landanna auk þess að fjalla sérstaklega um þá samstarfsmöguleika sem felast í norðurljósarannsóknum á Íslandi og í frekara samstarfi á sviði félagsvísinda.

Að málþinginu loknu verður kínverski ísbrjóturinn Snædrekinn til sýnis fyrir almenning við Oddeyrarbryggju á Akureyri frá kl. 12.30-16.00. Þar mun forseti bæjarstjórnar, Geir Kristinn Aðalsteinsson, setja opinn dag Snædrekans ásamt sendiherra Kína á Íslandi, Su Ge.

Nýjast