Snæbjörn Kristjánsson frá Akureyri sigraði í matreiðslukeppninni Mondial des Chefs sem fram fór í París í Frakklandi í dag.
Þar fór fram matreiðslukeppni milli matreiðslumanna sem starfa í opinberum eldhúsum, skólum, stofnunum og mötuneytum.
Keppendur þurftu að elda fyrir 10 manns, Lambahrygg í aðalrétt og eftirrétt þar sem möndlur áttu að vera í aðalhlutverki, samkvæmt upplýsingum frá freisting.is
Úrslitin voru:
1. sæti - Ísland, Snæbjörn Kristjánsson
2. sæti - Frakkland, Ghislain Moureaux
3. sæti - Indland, Shehrezad Kapadia