Slydda eða snjókoma fyrir norðan

Frá Akureyri Mynd/Karl Eskil
Frá Akureyri Mynd/Karl Eskil

 Veðurstofan gerir ráð fyrir svolítilli slyddu eða snjókomu í innsveitum á Norðurlandi eystra í dag. Gert er ráð fyrir norðvestan 8-15 m/s, en draga á úr vindi og úrkomu seinnipartinn á morgun. Hiti verður á bilinu 0-5 stig, mildast við ströndna.

 

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á miðvikudag:
Norðvestan 8-13 m/s NA-til og dálitlir skúrir eða slydduél. Hægari vindur í öðrum landshlutum og víða léttskýjað. Hiti 1 til 9 stig, hlýjast syðst. Víða næturfrost, einkum í innsveitum.

Á fimmtudag:
Suðvestan 5-10 m/s V-lands og þykknar upp með dálítilli rigningu þar síðdegis. Hægari vindur á A-verðu landinu og bjartviðri. Hiti 3 til 10 stig.

Á föstudag:
Sunnan 8-13 m/s og rigning eða súld, en hægari vindur og þurrt NA-til. Heldur hlýnandi veður.

Á laugardag:
Austanátt og talsverð rigning á SA-verðu landinu og einnig dálítil væta í öðrum landshlutum. Hiti 6 til 14 stig, hlýjast á N- og V-landi.

Á sunnudag og mánudag:
Útlit fyrir austlægar áttir og rigningu með köflum, einkum SA- og A-lands. Hiti svipaður

 

Nýjast