Slippurinn á góðri siglingu

Athafnasvæði Slippsins. Mynd/Hörður Geirsson
Athafnasvæði Slippsins. Mynd/Hörður Geirsson

„Verkefnastaðan hjá okkur næstu mánuðina er nokkuð góð, þótt ekki séu öll verk föst í hendi  þessa stundina, en ég er þokkalega bjartsýnn á stöðuna,“ segir Anton Benjamínsson framkvæmdastjóri Slippsins á Akureyri. Hjá fyrirtækinu starfa um 150 manns, aðallega málmiðnaðarmenn. „Þessar vikurnar erum við meðal annars að setja niður vinnslubúnað í Oddeyrina EA, sem er togari í eigu Samherja. Þetta er nokkuð umfangsmikið verk, annars er síðasti þriðjungur ársins venjulega rólegasti tími ársins.“

Stór hluti tekna Slippsins er vegna viðgerða á erlendum skipum. Samkvæmt verkefnasöðu Slippsins verður svo áfram. „Rússneskur togari er væntanlegur til okkar í næstu viku og síðan geri ég ráð fyrir að togarar frá Færeyjum og Grænlandi komi fljótlega. Í lok ársins kemur svo norskur togari til okkar. Þannig að mér sýnist að tekjur okkar vegna erlendra verkefna verði áfram talsverðar. Sem betur fer kjósa erlendar útgerðir að senda skip hingað, enda tel ég að Slippurinn skili útgerðum góðu verki á hagstæðu verði.“

karleskil@vikudagur.is

 

 

Nýjast