Slasaðist ofan við Kjarnaskóg

Björgunarsveitin Súlur á Akureyri og Dalbjörg í Eyjafirði aðstoðuðu erlendan ferðamann sem slasaðist á göngu, að öllum líkindum á Súlur, í gær. Maðurinn hringdi sjálfur í Neyðarlínuna og bað um aðstoð. Hann gaf upp GPS staðsetningarpunkt úr síma sínum og reyndist hann vera staddur ofan við Kjarnaskóg rétt innan við Akureyri. Björgunarsveitirnar hlúðu að honum og þurftu að bera hann töluverðan spotta niður í Gamla, skála skátafélagsins fyrir ofan Kjarna.

Talið er að maðurinn sé með brákað hné auk þess sem hann var orðinn nokkuð kaldur enda norðanvindur á staðnum.  

Nýjast