Stjórn Eyþings skorar á Alþingi Íslendinga að samþykkja frumvarp fjármálaráðherra um fjármögnun Vaðlaheiðarganga hið fyrsta, en tilboð í gerð ganganna rennur út 14. júní nk. Tafir á verkefninu hafa þegar valdið umtalsverðum skaða. Gerð ganganna er mikilvæg samgöngubót fyrir alla þá sem ferðast um Norðurland og eru ein af forsendum búsetu og jákvæðrar byggðaþróunar. Göngin eru þjóðhagslega hagkvæm, bæta umferðaröryggi, stytta leiðir, efla innviði dreifðra byggða, hafa áhrif á atvinnuuppbyggingu og skapa nauðsynleg atvinnutækifæri, minnka atvinnuleysi og tengja svæði.
Stjórn Eyþings þykir miður hvernig reynt hefur verið að afvegaleiða umræðuna um Vaðlaheiðargöng með ýmsum hætti. Minnt er á að um er að ræða flýtiframkvæmd. Áréttað er að ríkissjóður ábyrgist fjármögnun framkvæmdanna. Lánin verða greidd af veggjöldum en ekki úr ríkissjóði. Framkvæmdin tekur því ekki fé frá öðrum brýnum verkefnum og þeir fjármunir sem ætlaðir eru í gerð ganganna munu ekki nýtast öðrum framkvæmdum eða brýnum málaflokkum. Vert er að benda á að beinar og óbeinar tekjur ríkissjóðs á framkvæmdatímanum geta orðið verulegar. Þá fjármuni má nota í önnur brýn verkefni í þágu samfélagsins.
Áhættan af framkvæmdunum er ekki eins mikil og haldið hefur verið fram og er ekki öll ríkissjóðs. Aðrir sem leggja fram hlutafé, sveitarfélög og einkaaðilar, hafa trú á verkefninu og forsendum þess og hætta þar með sínum fjármunum í verkefnið. Í ljósi þess að áætlaður líftími ganganna er 100 ár breytir það engu hvort uppgreiðsla þeirra tekur 25 eða 35 ár með innheimtu veggjalda. Íbúar svæðisins eru reiðubúnir að taka á sig að greiða veggjöld til viðbótar þeim sköttum sem á þá eru lagðir svo að unnt sé að flýta framkvæmdum við Vaðlaheiðargöng. Stjórn Eyþings hvetur þingmenn til að samþykkja heimild til að fjármagna framkvæmdina en bregða ekki fæti fyrir þessa brýnu framkvæmd sem mun hafa í för með sér jákvæða innspýtingu í atvinnulíf þjóðarinnar, segir í áskorun stjórnar Eyþings.