Skólastýra Lundarskóla hætt

Þórhildur Helga Þorleifsdóttir skólastýra Lundarskóla á Akureyri hefur ákveðið að láta af störfum. Hún tilkynnti nemendum og foreldrum þetta í dag. Áður hafði hún fengið tímabundið leyfi frá störfum.  

Þá hefur Þorgerður Sigurðardóttir deildarstjóri yngri deildar skólans og staðgengill skólastýru fengið leyfi frá störfum í hálft ár, þar sem hún hefur verið ráðin til starfa við Háskólann á Akureyri.

Elías Gunnar Þorbjörnsson deildarstjóri eldri deildar hefur verið settur skólastjóri.

Nemendur Lundarsjkóla eru hátt í fimmhundruð og starfsmenn eru sjötíu.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast