Mjólkursamsalan hefur tekið í notkun fyrsta hluta af endurnýjuðum ostaframleiðslutækjum á Akureyri. Í fyrsta áfanga eru svokölluð forvinnslutæki, skilvindur og gerilsneiðingarbúnaður.
Þetta á að skila okkur betra hráefni og þar af leiðandi betri vörum, segir Kristín Halldórsdóttir mjólkurbússtjóri MS á Akureyri. Gert er ráð fyrir að félagið muni framleiða osta úr um 25-30 milljón lítrum af mjólk á ári í nýju tækjunum.
Endurnýjun ostaframleiðslunnar á Akureyri er hluti af stóru fjárfestingarverkefni Mjólkursamsölunnar sem felur í sér mikla endurnýjun og uppbyggingu á Akureyri og á Selfossi. Einar Sigurðsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar, segir að á næstu mánuðum takist félagið á við flóknasta og viðamesta uppbyggingarverkefni sem átt hefur sér stað í íslenskri mjólkurvinnslu.
Höfuðvígið á landsbyggðinni
Við erum að færa alla mjólkurvinnslu MS út á land. Höfuðvígið verður á Akureyri og Selfossi. Í Reykjavík verður fyrst og fremst dreifimiðstöð fyrir markaðinn og fyrir vinnslustöðvar, auk þess sem þar verður osti pakkað í neytendaumbúðir. Viðamesta verkefnið hér á Akureyri er ný ostavinnsla. Undanfarin ár hefur Mjólkursamsalan hagrætt mikið í rekstrinum. Árangurinn er þríþættur að sögn Einars.
Betri rekstrarafkoma
Í fyrsta lagi hefur félagið getað greitt bændum hærra mjólkurverð en ella til að mæta miklum kostnaðarhækkunum sem hafa lent á þeim. Í öðru lagi hefur verið unnt að forða því að þessi aukni kostnaður af hráefniskaupum lendi á neytendum. Í þriðja lagi hefur orðið bati í rekstrarafkomu Mjólkursamsölunnar þannig að félagið er nú í stakk búið að takast á við þetta viðamikla endurnýjunarverkefni. Gert er ráð fyrir því að endurnýjun ostavinnslunnar á Akureyri ljúki á haustmánuðum 2013. Á þeim tíma verður einnig byggt við húsnæði MS og kæliafgreiðsla félagsins þar stækkuð.
throstur@vikudagur.is