Skíðarútan ekur þriðja veturinn í röð með skíðafólk á öllum aldri upp í Hlíðarfjall og aftur heim. Margir hafa nýtt sér þjónustu skíðarútunnar síðustu helgar, enda prýðilegt færi í fjallinu og veður með ágætum. Forsvarsmenn The Traveling Viking sem reka Skíðarútuna segja að bæjarbúar séu í vaxandi mæli farnir að nýta sér bílinn þótt flestir séu farþegarnir af hótelum og gistiheimilum bæjarins. Utan áætlunartíma er hægt að hafa samband við þau hjá Skíðarútunni sem aðstoða fólk við að komast í fjallið ef hægt er.
Skíðarútan á Akureyri er áætlunarbíll sem gengur hring um bæinn allar helgar á fyrirfram ákveðnum tímum. Hringurinn er settur upp til að geta þjónað sem best skíðafólki í bænum og þeim gestum sem koma norður til skíðaiðkunnar. Þess vegna er keyrt á milli allra stóru hótela og gistiheimilanna í bænum. Allar nánari upplýsingar um Skíðarútuna og áætlun liggja frammi á þeim stöðum auk leiðarkorta.
Nánar um Skíðarútuna á heimasíðu The Traveling Viking